14.9.2011 | 20:55
Jafntefli í Þýskalandi
Það var löngu vitað að BvB leikvangurinn yrði erfiðasti útivöllurinn í þessum riðli enda ein mesta gryfja sem fyrirfinnst í allri Evrópu. Menn fóru því nokkuð sáttir heim með 1-1 jafntefli í farteskinu.
Segja má að Dortmund hafi haft yfirhöndina allan leikinn og þá sérstaklega í seinni hálfleik. Mario Göetze sem átti virkilega góðan leik var aðal arkitektinn að sóknum Dortmund ásamt Kagawa sem var einnig hættulegur. Dortmund voru nálægt því að komast yfir snemma leiks þegar að Robert Lewandowski náði að komast framhjá Szczesny og átti aðeins skotið eftir en blessunarlega var Bacary Sagna mættur og hreinsaði frá.
Robin van Persie hefði átt að gera betur stuttu síðar eftir að hafa fengið snyrtilega sendingu frá Benayoun en fyrirliðinn tók sér alltof lítinn tíma til að gera mat úr færinu og skaut framhjá. Hann bætti reyndar upp fyrir það nokkru síðar. Lítið var í gangi í leiknum og varnarmenn Dortmund spiluðu boltanum á milli sín allt þangað til að v. Persie komst inní slappa sendingu og náði að stýra boltanum til Walcott. Persie tók á rás og fékk algjöra drauma sendingu frá Theo á milli varnarmanna Dortmund og kláraði svo færið með hægri sleggjunni sem þykir víst ekkert síðri en sú vinstri þessa dagana. Þannig var svo staðan þegar flautað var til hálfleiks.
Ef pressa Dortmund var einhver í fyrri hálfleik þá var hún enn meiri í þeim síðari. Göetze lék sem fyrr á alls oddi og bjó til færi eftir færi fyrir liðsfélaga sína. Þó mátti engu muna að Gervinho næði að drepa leikinn á 59. mínútu er hann komst einn í gegn en Weidenfeller var réttur maður á réttum stað og kom í veg fyrir fyrsta mark Gervinho fyrir Arsenal.
Níu mínútum fyrir leikslok voru Dortmund nálægt því að jafna leikinn eftir hornspyrnu frá Göetze. Boltinn barst þá til Subotic sem skaut af stuttu færi en einhvern veginn í ósköpunum náði Szczesny að verja með því að klemma boltann á milli fótanna.
Á 88. mínútu fengu Dortmund-liðar svo aukaspyrnu rétt fyrir utan teig. Spyrnan hafnaði í veggnum en féll svo beint fyrir fætur varamannsins Ivan Perisic sem gerði sér lítið fyrir og smellti knettinum í skeytin! Óverjandi fyrir Szczesny í markinu og loksins kom markið hjá Dortmund. Alltaf virðist vera nóg af plássi fyrir svona stórbrotin mörk hjá Arsenal og minnti þetta um margt á markið hans Tiote í 4-4 jafnteflinu við Newcastle fyrr á þessu ári.
Engu mátti svo muna að Dortmund tæki öll stigin þrjú þegar að Lewandowski komst í gegnum vörnina aðeins til að mæta frábærum Wojciech Szczesny sem kom í veg fyrir að Arsenal færu tómhentir heim. 1-1 jafntefli því niðurstaðan í þessum bráðfjöruga leik sem hefði getað endað allt öðruvísi. Arsenal menn fóru því líklega sáttir heim og einnig sáttir við að þessum leik sé nú lokið.
Nokkur aukaorð...
Erfitt er að segja hver hafi verið maður leiksins. Szczesny stóð sig vel þegar á reyndi en átti að sjálfsögðu aldrei möguleika í skotið hans Perisic. Laurent Koscielny stóð sig sömuleiðis afar vel í vörninni og vann líklegast fleiri skallabolta heldur en sjálf himnalengjan Mertesacker. Alex Song barðist svo eins og ljón allan seinni hálfleikinn og sópaði eins og vön húsmóðir sóknir andstæðinganna. Hann fær mitt atkvæði að þessu sinni sökum þess að hann er meiri fjölskyldumaður en hinir tveir.
Annars verð ég að lýsa yfir áhyggjum mínum yfir Kieran Gibbs í þessum leik. Um leið og hann fékk boltann snéri hann við og gaf hann á Szczesny. Þetta gerði hann allavega sex sinnum í leiknum og sýndi fram á algjört getuleysi við að koma boltanum í spil. Þarna hefði kannski maður eins og Santos verið kjörinn í verkefnið og jafnvel hefði Gervinho ekki litið eins illa út fyrir vikið. Ímyndið ykkur martröðina fyrir varnarmenn Dortmund hefðu þeir þurft að hafa bæði áhyggjur af Gervinho og Santos sem elska að taka menn á og skilja þá eftir með áttavita í höndunum. Gefa Santos tækifærið gegn Blackburn um næsti helgi segi ég.
Maður leiksins: Alex Song
Flokkur: Meistaradeildin | Facebook
Færsluflokkar
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
- Arsenal.is Íslenski Arsenal.is vefurinn
- Arsenalfc.is Arsenal klúbburinn á Íslandi
- Goal.com Arsenal á Goal.com
- Gooner Talk Virkilega góður Arsenal penni
- Le Grove Eitt Arsenal blogg á dag, kemur lífinu í lag!
- Sky Sports Arsenal á Skysports.com
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.