21.9.2011 | 19:24
Þrír nýjir markaskorar komu Arsenal í 16-liða úrslitin
Arsenal tók á móti Shrewsbury í gærkvöldi og bar sigur af hólmi 3-1. Liðið samanstóð nokkrum reynsluboltum í bland við nýliða. Alex Chamberlain var einn þeirra og var víst maður leiksins að flestra mati en hann skoraði einmitt glæsilegt mark í seinni hálfleik.
Sagan segir að Arsenal hafi mátt teljast heppið að fara með 1-1 jafntefli inní búningsklefana í hálfleik. Shrewsbury tókst að komast yfir og héldu menn að enn eina ferðina væri Arsenal að fara að skíta upp á bak. Sem fyrr leit vörnin illa út og þá sér í lagi Johan Djourou. Bakverðirnir Carl Jenkinson og Kieran Gibbs sáu þó um að jafna leikinn en þá átti fyrrnefndur Carl glæsilega fyrirgjöf sem endaði á kollinum á Gibbs sem var þarna að skora sitt fyrsta mark fyrir félagið í alvöru leik.
Í seinni hálfleik þreyttust leikmenn Shrewsbury og gekk Arsenal þá á lagið. Eins og áður sagði skoraði Chamberlain virkilega gott mark og verður spennandi að fylgjast með hans framgöngu í liðinu á næstu árum.
Það var svo hinn létt leikandi Ísraeli Yussi Benayoun sem gulltryggði góðan heimasigur á 79. mínútu með sínu fyrsta marki fyrir félagið eftir góðan undirbúning frá Gibbs og Ozyakub.
Ánægjulegt að vera komnir áfram í þessari keppni sem er gullið tækifæri til að gefa minni spámönnum séns og leyfa þeim að sýna sig og sanna.
Bolton kemur svo í heimsókn á laugardaginn og það er vonandi að menn séu tilbúnir að rífa sig upp úr ruglinu og hirða öll stigin sem þar verða í boði!
Mörkin úr leiknum.
http://www.101greatgoals.com/videodisplay/arsenal-shrewsbury-15436207/
Flokkur: Deildabikarinn | Facebook
Færsluflokkar
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
- Arsenal.is Íslenski Arsenal.is vefurinn
- Arsenalfc.is Arsenal klúbburinn á Íslandi
- Goal.com Arsenal á Goal.com
- Gooner Talk Virkilega góður Arsenal penni
- Le Grove Eitt Arsenal blogg á dag, kemur lífinu í lag!
- Sky Sports Arsenal á Skysports.com
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.